Tuesday, December 31, 2013

Áramótakveðja

Þegar ég hugsa til baka og horfi á árið sem ér að líða get ég sagt að ég mun ekki sakna þess en ég get líka sagt að ég átti margar góðar stundir með skemmtilegu fólki og mig langar að rifja aðeins upp góðu hlutina sem árið bauð upp á.

-Í byrjun árs 2013 byrjaði ég í nýju námi, ég ákvað að skipta úr sálfræði og yfir í kennarafræði og stefni á að útskrifast sem grunnskólakennari í kringum 2017/2018. Þetta er langt nám en ég sé ekki eftir því að hafa skipt um braut þar sem ég finn að ég er á réttum stað og sé fram á skemmtilegt og krefjandi starf í framtíðinni.

- Við fórum nokkrum sinnum til Reykjavíkur til þess að taka þátt í stuðningshóp sem var settur saman á vegum landspítalans og ég er mjög þakklát fyrir að hafa fengið að taka þátt í honum, þrátt fyrir að þurfa að ferðast langa leið til þess að mæta þá gaf þetta okkur báðum mjög mikið.

- Ég byrjaði að vinna aftur og er mjög ánægð með það. Ég fékk vinnu við Heimaþjónustu hjá Akureyrabæ,  vinnutíminn er fínn þar sem að ég get unnið um helgar og á kvöldin.  

- Sumarið var fínt, við fórum í vikuferð til spánar með pabba fjölskyldu og áttum góða daga þar. Við fórum líka í nokkrar útilegur með tjaldvagninn en annars fór sumarið svoldið mikið í vinnu. Sumarið á Akureyri var hlýtt og gott að mestu og við fengum marga sólardaga J

- Skólinn byrjaði aftur haustið 2013 og ég ákvað að prófa að taka auka áfanga og ég var líka í vinnu þannig að ég endaði í 120% námi og 40% vinnu. Þetta endaði allt saman mjög vel og ég náði öllu í skólanum og vinnan var fín.

- Í oktober héldum við upp á afmælið hennar Helenu Sifjar og allt gekk mjög vel. Eins og ég hef skrifað um áður.

Þetta er svona það helsta sem ég man eftir í augnablikinu en góðar stundir voru margfallt fleiri en þær slæmu þrátt fyrir að ég man alltof vel allt það neikvæða. Ég er meðvitað búin að vera að vinna í breyttu hugarfari og veit það að með jákvæðni gengur allt svo miklu betur.
Áramót eru góður tími til þess að hugsa til baka og rifja upp það sem bar upp á árinu sem er að líða en ég þarf samt að passa mig aðeins og halda í allt það góða sem lífið hefur upp á að bjóða, ég vil fara inn í nýtt ár með bjartsýni og von í hjartanu. Ég veit með vissu að hugsunarhátturinn skiptir mjög miklu og hann spilar stórt hlutverk í því hvernig næsta ár mun verða.

Vonandi verður 2014 mitt ár.


Mig langar að nýta tækifærið og þakka ykkur sem lesið bloggið mitt fyrir jákvæðar móttökur og stuðning sem ég hef fengið frá ykkur. Bara það eitt að geta skrifað niður hvernig manni líður og vita að einhver lesi það hjálpar til. Hafið það sem allra allra best og njótið þess að vera með fólkinu sem ykkur þykir vænt um. 

Við ætlum að njóta þess að vera tvö saman í kvöld, borða góðan mat og hafa það kósý..  kalkúnabringan og sætu kartöflurnar eru í ofninum og rafmagnshrærarinn er á sósu vaktini! :)

Áramótakveðja, Sóley

(Nokkrar instagram myndir frá þessu ári)









Sunday, December 15, 2013

Skólafrí - Jólafrí


Þá eru prófin búin og öll verkefni komin til skila! Ég þarf reyndar að bíða svolítið eftir einkunnum áður en ég get sagt að þessi önn sé alveg búin :) Ég er búin að fá út úr tveim áföngum og það styttist í restina.
Þessi önn var svoldið strembin þar sem ég var að vinna með skólanum og ég tók einn auka áfanga, ég hefði mátt vera miklu miklu duglegri í vetur og ég vona að það komi ekki í bakið á mér. Anyways! Ég er búin með aðeins meira en eitt ár í kennarafræði og þá eru "bara" 4 ár eftir.

Annars var þessi vetur bara almennt séð nokkuð góður, nóg að gera og ekki mikill tími til að detta djúpt niður. Það varð mjög dimmt hérna á tímabili, áður en snjórinn kom og sá tími var líklegast erfiðastur. Skammdegið hefur greinilega svona rosalega mikil áhrif á mann. En með snjónum og jólaljósunum verður mun bjartara yfir öllu og allt verður aðeins auðveldara.

Á sama tíma og þessi önn var frekar erfið þá var hún nokkuð skemmtileg, það er allt annað að byrja á sama tíma og allir sem verða með manni í bekk heldur en að koma nýr inn um áramótin. Maður verður fyrr hluti af hópnum og þessi hópur sem ég var með í vetur var mjög góður :) Verst að ég verð ekki aftur með þeim í tíma fyrr en næsta haust.

Kvöldið fyrir síðasta prófið fórum við Gísli á Jólatónleika í Glerárkirkju og það var mjög kósý, maður fékk jólaandann alveg beint í æð. Kvöldið eftir prófið var ekki alveg jafn rólegt, þá fór ég ásamt nokkrum bekkjarsystrum mínum út að borða og svo á trúbadorakvöld. Það var rosalega gaman og maður skemmti sér fyrir alla dagana sem fóru í prófalestur!

Nú eru bara nokkrir vinnudagar eftir og þá verð ég komin í alvöru jólafrí.. Alveg til 2. janúar 2014 og skólinn byrjar ekki fyrr en 13. janúnar þannig að þetta verður örugglega voðalega ljúft frí (Ef ég náði öllum prófum þar að segja).

Í dag hef ég það ágætt en ég er samt sem áður með smá þyngsli í hjartanu, jólin geta verið svoldið erfið og það eru endalast einvherskonar áminningar um það sem við fáum ekki og getum ekki en þráum svo heitt.
Þetta átti nú bara að vera lítið og stutt sunnudagsblogg þar sem ég er ekkert búin að blogga lengi en hafði voðalega mikið að segja :)


- Sóley